Anna Lilja og Helga
25.06.2006 18:20:54 / huso

smá smá af mér :)

Vá maður er búin að vera smá glataður í að blogga...!!!:) En ég er að vinna núna upp í Langholtsskóla þar sem er sumarskóli fyrir börn með einhverfu:) mjög skemmtilegt:) margt er búið að gerast í sumar, djamm hverja einustu helgi aldrei friður, plastic sergeri eða hvernig sem það er skrifað og alles :) alltaf stuð að vera komin aftur:) en ætlaði bara að láta vita af mér og skrifa eitthvað skemmtilegt og krassandi seinna... Kv. Helga plast.... :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 11:17:48 / huso

í síðasta sinn!!

Vinna, vinna, vinna!

ég byrjaði að vinna á föstudaginn og allt saman gekk vel! ótrúlega skrítið að fara frá Póstinum yfir í Spron. Í Póstinum gat maður mætt í druslufötunum eða hvernig sem manni hentaði í það og það skiptið. Svo kemur maður hingað til Spron og *búmm* allir fínir og sætir. Engir strigaskór takk fyrir!? ;) en það er bara gaman, ætla bara njóta þess í sumar að vera í fínni kantinum. Þarf reyndar að fara að kaupa mér föt, ef ég á nú að eiga eitthvað til skiptana. Eða gera eins og mamma segir, fara í gegnum skápinn minn, það er örugglega eitthvað þar sem ekki hefur verið notað í einhvern tíma en mundi henta vel núna?! ;) svona er maður slæmur!

svo er mín bara að fara í prufu á Lækjarbrekku klukkan 6 í dag, enda á þetta eftir að vera langur dagur!! :S en þetta verður spennandi að sjá. Er nefnilega að sækja um aukavinnu út um allan bæ núna! Á líka að kíkja við á Cafe Óperu, sem að mér finnst mjög spennandi!?

jamm og jú, svo er maður bara orðinn tvítugur þegar maður vaknar í fyrramálið! skondið það :lol:   

svo maður býst við svaka fjöri annað kvöld...vííí...;)

kv. Anna Lilja 19 ára skvísa í síðasta sinn!


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 18:16:54 / huso

blogg, blogg, blogg...!

skólinn búinn og alles. bæði skrítið og skemmtilegt.

tókum roadtrip á þetta again..mjög gaman hjá okkur skvísunum á leiðinni heim! vorum fjórar saman, ég, Helga, Sigríður og Berglind.

Sigríður náði að pissa 6 metra langa leið, en ég reyndar aðeins 1 meter! hún var að brillera þarna á Hvolsvelli...!;) hehehe...!

nú er maður bara byrjaður að vinna hjá Spron, frábær banki!! svo sumarið er byrjað! Systir hennar Helgu var að gifta sig í gær, og vil ég óska þeim öllum til hamingju með daginn!;) það hlýtur að hafa verið svaka stuð á þeim bæ!

litlu prakkararnir eru í heimsókn hérna um helgina, fórum að kjósa áðan með drengina og fékk Örvar að hjálpa mér...má eiginlega segja að hann sé búinn að kjósa, enda fagnaði drengurinn þegar ég setti X við réttan bókstaf;) heheh.....! svo lét ég hann sjá um restina!!;)

jæja, ég ætla að fara að borða og kíkja svo á kaffihús með honum Agli mínum;)

síja...

kv. Annsla Pannsla, mosfellingamær.


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 17:45:11 / huso

Komnar heim í heiðardalinn!

Jújú..við erum komnar heim!?

 

Lögðum af stað á föstudaginn klukkan 14:00 frá Hallormsstað!

Roadtripið var hafið...hvernig það ætti eftir að verða vissi enginn??

Egilsstaðir var fyrsti áfangastaður, farið var í tvær mismunandi sjoppur..og verslað smávegis fyrir ferðina!;)

Síðan var lagt í hann....úff..ferðin byrjaði alls ekki vel, þar sem færðin yfir á Reyðarfjörð var alls ekki skemmtileg, hljómaði mikið svona; þarna er gul stika...og þarna! Og svo loksins byrjuðum við að sjá eitthvað annað en hvítt!;)

Síðan var hraðinn aðeins aukinn, Freyr var við stýri og allir voru að skemmta sér ágætlega, komum að veltu, þar sem flutningabíll hafði oltið á miðjum vegi rétt fyrir utan Stöðvarfjörð! (enginn slasaðist). Þar sáum við hvar Þráinn skólameistari var fremstur í röð að bíða eftir því að vera hleypt framhjá...! við reyndar þurftum ekki að bíða neitt heldur var röðinni hleypt af stað! Þá var aðeins eitt markmið...að ná Þráni! Sem reyndar tókst ekki, því okkur var mál að míga og stöðvuðum bifreiðina á áfangastað númer tvö, Höfn!;)

 

Áttuðum okkur á því að við vorum búin að vera helvíti fljót á leiðinni! En ferðinni var haldið áfram...Klaustur, get nú ekki sagt að við hefðum stoppað lengi þar...tekið bensín, hlustað á söguna frá því að Helga var hvít í Hollandi og svo haldið af stað! ;) hehehe...

Ferðin frá Klaustri að Vík..hljóðaði nú mest upp á umræður um bláa tungu og græna hlunka!?

Svo var þetta nú meira og minna bara Vík, Skógar, Hvolsvöllur, Hella og Selfoss...! Freyr keyrði alla leiðina og talið er að hann hafi farið yfir á mettíma!;) 7 og hálfur tími frá Hallormsstað til Selfossar...stoppað þrisvar á leiðinni! Alls ekki slæmt það..ónei!

Svo var það eldhúspartý hjá Sigríði til hálf 11 þegar fröken Didda kom og náði í okkur hin!

Ekki er hægt að segja annað en að roadtripið hafi verið stuð...enda einkenndist hún fyrst og fremst af fallegu og skemmtilegu fólki!;)

Ég vil þakka fallega og skemmtilega fólkinu fyrir frábært roadtrip! Roadtripfélagarnir eru: Sigríður, Helga, Freyr og Kjartan;) úfff...sjáið þið þetta fyrir ykkur!?

 

En við komust á leiðarenda og erum núna komnar í menninguna í Reykjavík...! sem er sko alls ekki slæmt;) manni líður nú samt eins og gesti...en það fer vonandi að breytast, um leið og maður er búin að koma sér ágætlega fyrir?!;)

 

Kv. Annsla Pannsla í bænum!?

 

 

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 15:59:10 / huso

Við erum að koma heim...! :)

 það er loksins að fara að koma að því...! J við erum að fara heim á morgun og verðum í heilar 2 vikur og 3 helgar J vá hvað okkur hlakkar til við erum eins og lítil börn sem eru að bíða eftir að opna pakkana á jólunum....! J við erum að fara að pakka niður í kvöld og förum svo í róttrippið á morgun! J leggjum af stað klukkan 14 og verðum komin kl ca 11/12 annað kvöld, fer allt eftir veðri ! J en ég og Anna Lilja langar alveg rosalega að fara á einhverja tónleika um helgina, því við höfum ekkert farið á neitt þannig í MJÖG langan tíma, maður heyrir  ekkert hér nema Skímó, Papana og í einhverji hljómsveit sem heitir Glis...? og jú auðvita Silvíu Nótt...!!! því viljum við einhvað alvöru, ef þið vitið um e-ð skemmtilegt sem er að gerast í bænum látið þá okkur sveitalúðana endilega vita J en sjáumst hress um helgina

 

 



Kveðja, gellurnar sem eru að deyja að komast á mölina... ! :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 21:47:31 / huso

Ekki alveg í stuði fyrir þetta!

jú gott fólk ég reyndi, en nenni ekki meira!? Picture Trail er drasl...og það sama má segja um tölvuna mína! það kom alveg heil mynd inná, af ég veit ekki hvað mörgum?! búin að gera nokkrar tilraunir en er bara ekki alveg í stuði fyrir þetta!

En yfir í allt annað! ég og Helga áttum skemmtilega og mjög viðburðaríka helgi:lol: hehe...! ætla nú ekki að tjá mig neitt meira um hana hér á netinu! enda kannski ekki fyrir alla að vita...þetta verður svona v.i.p. fréttir! ;) en jújú, kíktum á ball ásamt Lilju, Huldu og Siggu og á ballinu hittum við fleira gott fólk, og allir voru að skemmta sér vel! ég eignaðist nokkrar klósettvinkonur, ætla að gera meira af því í framtíðinni, þær voru æði;) og svo kom eiginkonan mín hlaupandi til mín og spurði; "Hvernig finnst þér svo brúðkaupsnóttin?" jú það er sko rétt ég lá í kasti enda er Berglind snillingur!;) hehe..! ekki hægt annað en að hafa gaman af henni!?

úff..! og svo er bara að koma að þessu, næsta föstudagskvöld verður sofið í rúminu sínu í sjálfri borginni!;) vá ég hlakka til!  páskafrí í rúmar 2 vikur, gerist ekki betra! páskaeggin eru komin í búðir, og vá djöfull er þetta dýrt!? bíð svo bara eftir því að Örvar og Sædís fari að syngja uppáhalds lagið mitt, sem hljómar reyndar allt árið hjá mér, því hann Örvar kallinn er eins og biluð plata!;) En þetta lag er um páskasól!!

jæja..ætla að fara að gera eitthvað af viti!?  Helga biður að heilsa...!

þangað til seinna..

Anna Lilja - stúlkan sem verður í bænum eftir viku. :P


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 19:17:51 / huso

snjór, snór og meiri snjór

Vá það snjóar sko á hallormsstað, það er búið að snjóa stanslaust í tvo daga! Sem er mjög gaman í rauninni en snjórinn hafði alveg mátt koma fyrr.  Við krakkarnir í skólanum erum búin að búa til hálft snjóhús, snjókall og allskonarJ  svo er maður auðvitað búin að prufa nokkrum sinnum að ná í svarta ruslapokann og renna sér niður J það var rosa gaman...!!! manni líður bara eins og maður sé 10 ára aftur... J það er sannkallað snjóstuð fyrir austan núna!!!:haha:

snjókveðja Helga:lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 20:23:48 / huso

mikið gaman

Á föstudaginn kíkti ég og Anna Lilja á Egilsstaði ásamt öðrum til þess að láta gorma bækurnar okkar og svona.  Og eftir það fór fólkið að vesenast á Egilsstöðum en ég og Anna Lilja ákvöðum að kíkja á Nielsen og fengum okkur einn öllara í tilefni dagsins að það væri kominn föstudagur og fyrsta helgin mín fyrir austan í heilan mánuð..! J kíktum svo aftur upp í húsó en við komust öll í svo mikinn fíling að ið fórum öll saman á Egilsstaði og fórum út að borða á Yfir borðinu og horfðum á Iðolið þar með einum bjór eða svo! :) svo kíktum við í USSP partý á Svörthvítu hetjunni sem Steini í bachelor bauð okkur húsó gellunum í og bauð okkur upp á bjór og læti :) og fengum svo bjórinn á 300 kall restina af kvöldinu...!!! :) og það munu koma inn með myndir bráðlega frá helginni...!!! J

Restin af helginni fór í gott chill, fórum í sund og horfðum á videó! En ég, Anna Lilja og Sigríður fórum í langann göngutúr og sáum minnk á hlaupum, merkilegt ha! Þetta sér maður ekki á hverjum degi í Reykjvíkinni?!!! haha J

Enn, næstu helgi verður nú stuðJ við skvísurnar fáum að vera í íbúðinni hennar kolbrúnar, frænku hennar Önnu Lilju, alla helgina.  Þar ætlum við bara tvær að elda góðan mat fá okkur hvitvín og smá bjór og meika það, VÁ hvað það verður næsJ  kíkja svo kanski á bæjarlífið á Egilsstöðum!!!

 

P.S.það munu koma inn með myndir bráðlega frá helginni...!!! J



Ekkert meira í bili, heyrumstumst J


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 18:28:29 / huso

Var maður ekki búin að lofa að vera duglegri við þetta!?

En ein helgin runnin upp...! fór í gær inn á Egilsstaði, það var ekkert smá gott veður, 15 stiga hiti og sól. Ég, Helga og Freyr röltum um bæinn í sumarfíling...okkur leið eins og í útlöndum. Enda var mjög létt yfir öllum Egilsstaðabúum, skapið þeirra fer greinilega eftir veðrinu!;) Kolbrún skvísa kom svo og náði í mig og Helgu og hún skutlaði skvísunni henni Helgu út á flugvöll, þar sem hún tók flug heim í borgina. Ómar litli bróðir hennar er að fermast á morgun, það er nú meira hvað hann er orðinn stór og algjör töffari. Bræðir örugglega allar gellur upp úr skónum drengurinn! ;)

Ég fór til Kolbrúnar og við horfðum á einhverja mynd með Önnu Karín og vinkonu hennar. Anna Karín var 12 ára á fimmtudaginn, og ég er einmitt að fara í afmæli til skvísunar á morgun. Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, bara allir að verða stórir. Mér finnst nú ekkert langt síðan að ég var að passa þessa litlu stúlkukind, en það eru greinilega komin þó nokkuð mörg ár síðan. Gaman af því hvað allir eldast nema ég! Ég er bara alltaf litla stelpan...eldist ekki neitt;) sem er bara gaman, ætla bara að halda því áfram að vera ung og vitlaus!

Já, sveimérþá, það er alltaf svo gott að koma til Kolbrúnar! Við tölum alltaf um allt á milli himins og jarðar. Það er alveg ótrúlega gott að tala við hana!? Maður ætti kannski bara að tilheyra henni þetta blogg. ;) ég ætla nú ekkert að fara út í það um hvað við ræddum! Það var líka svo ótrúlega margt!;)

Ég fór svo um átta að hitta fólkið á Yfir borðið og við horfðum á idolið og svo var svo ótrúlega gott veður út að við tókum röltið niður í sjoppu og svo á rónabekk sem að við fundum. Kvöldið varð nú ekki mikið lengra en það. Heldur fórum við bara aftur upp á vist og í stuðið þar!! ;)

Erum ekki nema sjö í húsinu núna og voða kósý og rólegt hérna. Bara hálf heimilislegt! Svo er fólk svona að spá í kvöldinu. Sumum langar að kíkja út á hið villta djamm Egilsstaða en öðrum langar að vera heima að slappa af og læra og eitthvað. Ætli maður verði ekki bara félagsskítur og verði heima í rólegheitunum!;) Enda afmæli á morgun og svona, verður nú að mæta hress í það;)

Ég kveð í bili, ætla að reyna að mana mig upp í lærdóm!

Bless og góða helgi;)

Kv. Anna Lilja, stúlkan sem er að ná sér af flensunni!


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 20:36:19 / huso

Veikindi Smeikindi!

jújú...veikindin herja á landinu austan til!? algjört prump;(

ég er búin að vera veik núna í næstum viku. lá í rúminu alla helgina og lét dekra við mig! svaf á milli máltíða eins og einhver kallaði það! Helga skvís er búin að vera með kvef svoldið lengi en er núna rosa slæm en hitastig líkamans breytist samt ekkert, svo hún heldur áfram að meika daginn eins og sönn hetja!;)

Hóstinn er skemmtilegt fyrirbæri, sem maður fær fljótt leið af! ég er búin að vera með hósta í viku og er líka komin með svaka magavöðva. hver þarf ræktina þegar hann hefur líkamann til þess að sjá um þetta...!;) svo verður maður bara að halda þessu við, ekki hóstanum heldur magavöðvunum;)

jæja...ætla að fara að læra! en þið eigið eftir að heyra meira frá okkur núna, því blessað netið er komið í hús;)

kv. Anna Lilja sem heldur áfram að hósta!


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 20:34:55 / huso

nýjustu fréttir:)

Halló halló

Ég og Anna Lilja byðum spenntar eftir að koma aftur upp í Halló til þess að við gætum bloggað meira á þessa blessuðu síðu okkar því netið átti að koma um helgina!! Enn nei nei karl skarfarnir létu ekki sjá sig þannig að það er ekkert net enn komið!!! L en við sitjum hér á Nielsen á Egilsstöðum og erum að horfa á Liverpool vs benfica, í svaka fíling.  En ég var anars á Akureyri um helgina og það vara gasa stuðJ djammað alla dagana, fim,fös og laugardagskvöld...!!! J og fer líklegast aftur næstu helgi? J

En svo fer að koma að því gott fólk að þið verðið að fara að koma að heimsækja okkur í þessa mögnuðu sveitJ það er algjört möst!!! J það er e-ð sem þið megið ekki missa af, verðið að nota ykkur tækifærið að koma hingað víst við erum hér J

Látið okkur endilega vita ef þið eruð til því við getum reddað ódyrri gistingu!!! en annars látum við heyra fljótlega í okkur ef þetta blessaða net kemur einhvertímann upp í Húsó?J 

p.s. Anna Lilja er að fara að gifta sig!!!:lol:

            Bestustu kveðjur Helga og Anna Lilja   


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 20:01:12 / huso

farið nú að skilja þetta!

svona er þetta bara gott fólk!

á hallormsstað er ekkert net, það á reyndar að koma núna um helgina..svo þið munuð fá að heyra meira. var að lesa gestabókina og fólk gerir ekkert nema að kvarta.

reynið nú að skilja að erfitt er að komast á netið. jújú, það er net á egilsstöðum en við getum því miður ekki tekið tölvuna okkar með okkur þangað. höfum fengið tölvu að láni en það er erfitt því að hinir vilja vera í sinni tölvu á netinu. ættuð að vera fegin að við séum að gera eitthvað betra við tíman okkar en að hanga í tölvunni.

en núna ætla ég að hætta að kvarta yfir því að fólk sé að kvarta;)

kv. Anna Lilja kvörtunargella!


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 15:17:34 / huso

Reykjavíkurnætur!

Jújú! Eins og flestir vita þá komum við skvísurnar í bæinn um helgina;)

Birna systir tók á móti mér og ég kíkti á nýju íbúðina hennar og Sigursteins, svaka kósý hjá þeim;) spjölluðum í smá stund og síðan kom hann Egill minn að sækja mig og við fórum á kaffihús. Ég var auðvitað í smá menningarsjokki og var eins og lítil stelpa að sjá stórborgina í fyrsta skipti! Spjölluðum yfir kakó og kaffi og svo þurfti mín að drífa sig heim að hafa sig til fyrir kvöldið.

Fórum í ljúft og skemmtilegt matarboð hjá Þórhöllu og Arnþóri á föstudaginn og ég naut þess í tætlur að vera á gömlum slóðum! Fengum hvítvín með matnum og svo voru drukknir nokkrir bjórar yfir idolinu og spjallinu;) Didda kíkti á okkur og þá var spjallað meira!

Svo kom að því að ég og Helga vorum orðnar mikið þreyttar og fórum bara heim í bælið!;) klukkan var um tvö og það var mjög gott að komast heim að sofa...vissi reyndar ekkert hvar ég var daginn eftir...aldrei sofið inni í sjónvarpsherbergi áður!

 

 



Svo kom laugardagurinn: ég vaknaði fyrst klukkan sjö og var að vona að mamma og pabbi væru vöknuð en svo var ekki. Svo ég hvíldi mig í smá stund í viðbót en ákvað svo að skríða uppí! Og þá fóru þau bara!;) hehehe... sem var fínt!

Fór svo með mömmu og pabba upp í Vík að tippa...góðar stundir!;) maður er orðinn spenntur yfir sumrinu, að sjá liðið sitt vinna!!

 

 



Ég fór svo í tvöfalt barnaafmæli hjá Örvari (7 ára) og Tómasi (1. árs)! Algjörar dúllur þessir pjakkar! Var mjög gaman að hitta allt liðið og fá æðislega veislu hjá Unni – snilldar eldamennska þar á ferð! Maður þarf greinilega ekki að fara í húsmæðraskólann til að læra að elda;) helgin sannaði það, frábær matur hvert sem ég fór...Þórhalla kokkur, Unnur snilli og að sjálfsögðu hún móðir mín sem kann sitt fag best af öllum;)

 

 



Naut þess að vera með fjölskyldunni og mér fannst bara frekar fúlt að laugardagurinn væri meira en hálfnaður. Lagði mig í pabbarúmi í smástund þegar ég kom heim og mamma kom og kúraði hjá mér! Vaknaði við skemmtilega símhringingu frá Birnu, hún spurði hvenær ég ætlaði að fara til Brynju? Ég skildi ekkert um hvað manneskjan var að tala og fékk smá sjokk og ætlaði að flýta mér niður að elda fyrir húsóliðið...! vá vissi ekkert hvert ég var komin, var að dreyma húsó og hélt barasta að ég væri stödd þar! En mín áttaði sig og sagði: um átta bara, og sofnaði svo í smá stund aftur.

 

 



Fór svo að hafa mig til fyrir kvöldið og Tinna a.k.a. Born to Drive kom og náði í mig! ;) vá hvað það var gaman að sjá píjuna, alltaf sama skvísan;)

Fórum til Brynju og sáttum þar í smá, og svo komu Birna og Ágústa a.k.a Gubba Gubb! Hehehe.....

Spjölluðum um tíma og Tinna missti sig á myndavélinni! Við misstum okkur reyndar líka og er til fyndið myndband af henni Birnu systir!

Didda a.k.a. Dídí and Dexter kíkti svo á okkur, alltaf gaman að hitta þá stöllu;)

 

 



Síðan hringdi Egill og lét mig vita að það væri smá Borgódjamm hjá honum Sigga! Ákvað að kíkja í smá stund til að sjá liðið;) stoppuðum stutt enda allir eitthvað hálf þreyttir í hópnum!

 

 



Brynja fór heim með Sigþóri sínum. En ég, Didda og Ága lögðum að stað í áttina að bænum. Náðum reyndar ekki langt, því hann Elmar minn hringdi og var víst kominn í bryggjuhverfið hjá honum Sigga! Við stoppuðum hjá Ingvari Helgasyni og biðum þar eftir honum.

Svo kom upp smá einkahúmór hjá mér og Águ sem að verður ekki upplýstur hér á veraldarvefnum;)  heheheh...!

 

 



Var ekki skemmtilegasti ferðafélaginn hans Elmars enda orðin dauðþreytt!? En ég reyndi! Rúntuðum smávegis og enduðum svo á Kjalarnesinu, held að ég hafi aldrei stoppað þar jafn lengi á ævi minni, staðurinn sem að maður keyrir alltaf bara í gegnum. Vorum þar í svona tvo tíma að spjalla;) Síðan skutlaði gæinn mér heim að sofa, sem að tókst reyndar ekki enda var talað saman í gegnum sms til rúmlega fimm!;) bara gaman!

 

 



Svo er sunnudagur núna, ekki gaman! Fer aftur til Egilsstaða klukkan 7!?

Tók langan tíma að vakna, vildi helst bara sofa. Síðan var bara sunnudagsmatur klukkan eitt, Guðrún frænka, Halli og amma komu í mat. Erum núna að skoða myndir frá því í sumar og eitthvað. Mjög gott að vera heima;)

Veit ekkert hvað mun gerast í framhaldinu af því. En ég kem svo aftur í borg óttans 7. apríl sama dag og Erla verður þrítug kelling;) heheheh...!

Við í húsó ætlum að taka roadtripið á þetta bara, það verður svaka stuð;) Við erum: ég, Helga, Sigríður, Freyr og Kjartan! Svo það verður þröngt á þingi og stuð alla leiðina;) bara stemming!

 

 



Ég vil þakka öllum fyrir skemmtilega helgi og það var gaman að hitta alla sem að ég náði að hitta, alltof stuttur tími hins vegar. En þeir sem vilja þá er það Akureyrir næsta helgi. Koma svo fólk, tekur nú ekkert það langan tíma að keyra þangað, svo bara allir að koma!:)

 

 



Bið að heilsa ykkur í bili;)

Kv. Anna Lilja Hallormsstaðarmær!

 

 



p.s. fáum svo bráðum að heyra frá helginni hennar Helgu, verðum nú að fá að vita hvernig fimmtugsafmælið hjá múttunni hennar var!?;)  býst við krassandi sögum þaðan!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 21:26:17 / huso

Komnar í samband!

sælt veri fólkið;)

það er nú allt gott að frétta af okkur og allt gengur vel! mikið að gera hjá okkur og lítið um netsamband...! skil samt vel að þið séuð að hvarta..því við höfum alls ekki verið duglegar við þetta;) það er samt að koma net upp í skóla og þá fáið þið sko að lesa um allt sem að gerist!

músin kemur að góðum notum, og Karen ekki hafa áhyggjur því við pössum okkur á öllu, bæði konum og köllum;)

heilsuátakið er sko byrjað, flúorið að gera sitt og gönguleiðarnar eru æði! ég og Helga höfum núna farið út að labba og tekið smá á! Búið að vera æðislegt veður og umhverfið er svakalega flott! eitt af því flottasta sem ég hef séð! ;) erum að njóta þess í botn!

Það er mjög gaman í skólanum og mikið sniðugt sem að maður er að læra þarna!;) þið fáið kennslu frá okkur þegar við komum heim! hehehe...;)

Við viljum óska afmælisbörnum til hamingju; Elísa og Helena = tvítugar gellur

og að sjálfsögðu henni Björg okkar! við lofum að fara ekki frá þér aftur..hehe;)

hlakka til að sjá ykkur öll;) lifið í lukku en ekki í krukku!

kv. Anna Lilja átaksstúlkan (vá hvað æfingarnar hennar Höllu Karenar eru að virka) ;)

knús og kossar!


» 19 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 00:01:26 / huso

Egilsstaðir hér erum við!;)

jújú,.,.við erum komin í Húsmæðraskólann;) erum núna á djamminu og ég er byrjuð að finna á mér;) hehehe...auðvitað;) er að blogga hér í tölvunni hjá Freysa sæta;) takk Freyr;)

jæja erum fullar og ekkert annað...að sjálfsögðu;) tíhí,...!

biðjum að heilsa og erum að skemmta okkur vel ;)

þetta er bara æði sæði;)

kv. Anna Lilja

stúlkan sem veit ekkert hvað hún er að segja!!!

p.s. Hæ Pabbi! ;) elska ykkur ölll


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2